
Vetrarbúnaður
Snjókeðjur, snjóplógar og vetrarbúnaður í miklu úrvali
Allt í íslenska veturinn
Skralli býður upp á breiða línu af vetrarbúnaði svo ökumaðurinn komist í gegnum veturinn - Hvort sem þú ferðist um ótroðnar slóðir eða sért ryðja veginn fyrir aðra.
Snjókeðjur · Lilleseth
Snjókeðjur frá Lilleseth
Lilleseth er norskt rótgróið fjölskyldufyrirtæki stofnað 1947 og sérhæfir sig í snjókeðjum fyrir bíla og tæki af öllum gerðum. Allar keðjur eru sérsniðnar og einfaldar í uppsetningu og eru því sérstaklega þægilegar í notkun.
Keðjurnar eru sniðnar að dekkjastærðinni, fara vel með dekkin og eru settar á án verkfæra.
- Stofnað í Noregi
- 1947
- Ára reynsla
- 75+
- Gerðir brodda
- 3
Snjókeðjur sem henta þér
Keðjur fyrir öll tæki
Dráttarvélar
Fyrir snjómokstur, landbúnað og akstur á ísilögðum vegum.
Vinnuvélar
Hjólaskóflur, búkollur, hjólagröfur og jarðýtur.
Vörubílar og rútur
Vörubílar, rútur og flutningabílar, einnig á tvöföld dekk.
Vagnar og minni tæki
Vagnar, fjórhjól og annar búnaður.
Keðjutýpur
Fjórar línur sem ná yfir flest tæki. Við sérpöntum keðjur eftir dekkjastærð og aðstæðum.
Léttkeðja
Mest selda keðjanEasy On
Þykkt
5,7 · 7mm
Létt keðja sem gefur mikil akstursþægindi, jafnvel á meiri hraða. Ferkantaðir hlekkir með U-broddum gefa gott grip í snjómokstri og á ísilögðum vegum.
- Létt og fer vel með dekkin
- Sniðin að dekkjastærð
- Sett á án verkfæra
Fljótandi gaddakeðja
Combi-Grip
Þykkt
8 · 9mm
Snúin og sterkbyggð gaddakeðja sem flýtur jafnt yfir dekkið og gefur jafnan og mjúkan akstur. Öflugt og slitsterkt grip fyrir landbúnað, vinnuvélar, skógarvinnu og snjómokstur.
- Fer vel með dekkin
- Einföld uppsetning án verkfæra
- Einnig fyrir hjólagröfur
Gaddakeðja fyrir flutninga
Arctic Grip
Þykkt
7 · 8 · 9mm
Fyrir vörubíla, rútur og flutningabíla. Snúin keðja úr gegnhertu stálblendi með öflugum göddum og sterkum, seighertum krók sem gefur gott grip á hálum vetrarvegum.
- Hálfþétt, ofurþétt eða stýriskeðja
- Nákvæm passa og fljótleg uppsetning
- Einnig fyrir tvöföld dekk
Fyrir minni tæki
Fjórhjólakeðjur
Þykkt
5,7mm
Ferkantaðar keðjur með U-broddum sem grípa vel, jafnvel á dekkjum með háu munstri. Sniðnar að dekkjastærð og settar á án verkfæra.
- Grípa vel á háu munstri
- Sett á án verkfæra
Af hverju Lilleseth?
Sniðnar að dekkinu
Hver keðja er sniðin að dekkjastærðinni svo hún situr rétt frá fyrsta degi.
Án verkfæra
Einföld og fljótleg uppsetning, engin sérverkfæri nauðsynleg.
Fer vel með dekkin
Fljótandi keðjur liggja jafnt á dekkinu og fara vel með það.
Hert stál
Gegnhert stál og sterkir tengihlekkir sem endast vetur eftir vetur.
Gerðir brodda
Broddarnir ráða gripinu. Við hjálpum þér að velja rétta gerð fyrir þínar aðstæður.

Flatkantur / fírkant
Ferkantaðir hlekkir með skörpum köntum sem bíta í ís og þjappaðan snjó.

U-broddar
U-laga gripbroddar á ferkantaðri keðju gefa besta gripið og mesta slitþolið, líka á dekkjum með háu munstri.

Gaddar
Sterkir gaddar á snúinni keðju fyrir erfiðustu aðstæður. 9 mm keðja er með 10 mm göddum og 11 mm keðja með 13 mm göddum.
Aukahlutir
Við bjóðum upp á breitt úrval af varahlutum og verkfærum fyrir snjókeðjur.
- 01Keðjuefni
- 02Viðgerðahlekkir
- 03Strekkjarar
- 04Verkfæri / keðjutangir
Finndu réttu keðjuna
Sendu okkur dekkjastærðina og tegund tækis og við finnum réttu keðjuna fyrir þig.
Eldri dekk geta verið merkt á annan hátt, t.d. 12.4-36.
- 1
Finndu dekkjastærðina
Hún stendur á hlið dekksins.
- 2
Sendu okkur fyrirspurn
Tegund tækis og dekkjastærð nægja.
- 3
Við finnum réttu keðjuna
Og sendum þér tilboð.
Fyrirspurn um snjókeðjur

Gigant · Noregi
Snjóplógar og hálkuvarnir
Fjölplógar, sanddreifarar og ís- og veghefill frá Gigant, norsk hönnun fyrir verktaka, bændur og sveitarfélög.
Snjóplógar
Gigant býður upp á tvær týpur af fjölplógum, HSV og LSV. Sammerkt með þeim báðum er útsláttarbúnaður á skerablaði er úr HARDOX ásamt því að allir boltar og öxlar eru úr ryðfríu stáli. LSV er fyrir minni vélar, nettur og þægilegur og hægt að fá með sama búnaði og stærri HSV plógarnir.
HSV kemur með öllu því sem verktakinn óskar sér og hentar til dæmis vel á stóra traktóra og milli og meðalstórar hjólaskóflur.
Hægt er að stilla plógana sem V, Y eða skekkt beint blað.

Lægri plógur · fyrir minni vélar
LSV fjölplógur
Lágur plógur gefur góða yfirsýn og hentar vel í þéttbýli, á gangstéttum og minni svæðum.
- Hæð
- 91,5 cm
- Breiddir
- 200 · 250 · 280 cm
- Vinnuvinkill
- 30°
- Festing
- 3ja punkta og SMS
Staðalbúnaður
- 3ja punkta og SMS festing
- Veltibúnaður
Fáanlegur aukabúnaður
- Volvo BM krókar
- L-30 krókar (minni Volvo BM krókar)
- 2 x blikkljós
- 2x LED ljós á hornum
- 2x stoðfætur með hringlaga plöttum til að fylgja eftir landslagi
- Superswing - Hægt sé að stilla plóg sem skekkjanlegt beint blað
- Stjórnbox fyrir superswing
- 2x akkúmulatorar sem gefa eftir ef lent er á föstu. (Ekki hægt með superwing)

Hærri plógur · fyrir stærri vélar
Snjóplógur HSV
HSV er gerður til þess að standast væntingar jafnvel kröfuhörðustu verktaka, á bílastæðum, iðnaðarsvæðum og vegum.
- Hæð
- 122 cm
- Breiddir
- 280 · 320 cm
- Vinnuvinkill
- 35°
- Festing
- 3ja punkta
Staðalbúnaður
- 3ja punkta festing
- Veltibúnaður
- Superswing - Hægt sé að stilla plóg sem skekkjanlegt beint blað
- 2x LED ljós á hornum
Fáanlegur aukabúnaður
- Stjórnbox fyrir superswing
- Volvo BM krókar
- L-30 krókar (minni Volvo BM krókar)
- 2 x blikkljós
- 2 x stoðfætur með hringlaga plöttum til að fylgja eftir landslagi
Hálkuvarnir og veghefill
Gigant býður einnig upp á búnað til að halda vegum og plönum öruggum allan veturinn.
Sanddreifarar GSS
Sjálfhlaðandi sanddreifarar fyrir dráttarvélar og hjólaskóflur. Dreifa sandi, salti eða möl. Sandblásnir og lakkaðir með tveggja þátta lakki sem þolir veturinn.
- stærðir
- 4
- mest
- 2.500 l
- breidd
- 210 cm
- Þrepalaus vökvastýring
- Yfirbreiðsla fylgir
- BM-festing fáanleg
Dreifivagnar GSS
Dreifivagn aftan í dráttarvél fyrir stærri verk. Dreifir sandi, salti og möl allt að 32 mm.
- GSS-70
- 7 m³
- GSS-100
- 10 m³
- Hannaður í samstarfi við notendur
- Fyrir sveitarfélög og verktaka
Ís- og veghefill GB
Fjarlægir þjappaðan snjó og klaka og nýtist líka við viðhald malarvega allt árið.
- stærðir
- 2
- skerablað úr Hardox
- 6 mm
- GB-280 og GB-305
- Hardox 500 í öllum slitflötum
- Þrískipt skerastál með fjaðrandi útslætti
- 3ja punkta festing fyrir dráttarvélar og hjólaskóflur
