Fleiri vöruframboð
Allt í íslenska veturinn
Skralli býður upp á breiða línu af vetrarbúnaði svo ökumaðurinn komist í gegnum veturinn - Hvort sem þú ferðist um ótroðnar slóðir eða sért ryðja veginn fyrir aðra.
Snjókeðjur
Lilleseth er norskt rótgróið fjölskyldufyrirtæki stofnað 1947 og sérhæfir sig í snjókeðjum fyrir bíla og tæki af öllum gerðum. Allar keðjur eru sérsniðnar og einfaldar í uppsetningu og eru því sérstaklega þægilegar í notkun.
Vinnuvélar
Vörubílar
Dráttarvélar
Gerðir brodda
Flatkantur / fírkant
U-broddar
Gaddar
Aukahlutir
Við bjóðum upp á breitt úrval af varahlutum og verkfærum fyrir snjókeðjur.
Keðjuefni
Viðgerðahlekkir
Strekkjarar
Verkfæri / keðjutangir
Snjóplógar
Gigant býður upp á tvær týpur af fjölplógum, HSV og LSV. Sammerkt með þeim báðum er útsláttarbúnaður á skerablaði er úr HARDOX ásamt því að allir boltar og öxlar eru úr ryðfríu stáli. LSV er fyrir minni vélar, nettur og þægilegur og hægt að fá með sama búnaði og stærri HSV plógarnir.
HSV kemur með öllu því sem verktakinn óskar sér og hentar til dæmis vel á stóra traktóra og milli og meðalstórar hjólaskóflur.
LSV fjölplógur
LSV er 91,5 cm á hæð og kemur í breiddunum 200cm, 250cm og 280cm. Eru með veltibúnaði og 30 gráðu vinnuvinkil á vængjum. 3ja punkta og SMS festing hluti af staðalbúnaði.
Fáanlegur aukabúnaður:
Volvo BM krókar
L-30 krókar (minni Volvo BM krókar)
2 x blikkljós
2x LED ljós á hornum
2x stoðfætur með hringlaga plöttum til að fylgja eftir landslagi
Superswing - Hægt sé að stilla plóg sem skekkjanlegt beint blað
Stjórnbox fyrir superswing
2x akkúmulatorar sem gefa eftir ef lent er á föstu. (Ekki hægt með superwing)
Snjóplógur HSV
HSV er 122 cm á hæð og kemur í breiddunum 280cm, 320cm og 360cm. Þessir plógar eru með veltibúnað og 35 gráðu vinnuvinkil á vængjum. HSV er gerður til þess að standast væntingar jafnvel kröfuhörðustu verktaka.
Staðalbúnaður:
3ja punkta festing
Superswing - Hægt sé að stilla plóg sem skekkjanlegt beint blað
2x LED ljós á hornum
Fáanlegur aukabúnaður:
Stjórnbox fyrir superswing
Volvo BM krókar
L-30 krókar (minni Volvo BM krókar)
2 x blikkljós
2 x stoðfætur með hringlaga plöttum til að fylgja eftir landslagi