Fleiri vöruframboð
Sturtuvagnar fyrir íslenskar aðstæður
Gigant sturtuvagnarnir eru framleiddir í Noregi og henta því sérlega vel í íslenskum aðstæðum. Vagnarnir koma í mismunandi stærðum og útfærslum, allt frá 750kg fjórhjóla- og minigröfuvögnum upp í 3ja öxla verktakavagna.
Hjólagröfuvagnar
Vertu lipur með Gigant. Hjólagröfuvagnarnir frá Gigant eru einstaklega sterkir og liprir aftan í hjólagröfum. Útbúnir sérstöku bremsukerfi sem bremsar á lægri þrýstingi en venjulegur vagn, eða max 110 börum. Hjólagröfur bremsa á u.þ.b. 50-90 börum, en ekki þeim 160-180 börum sem dráttarvélar nota. Þetta lágmarkar álag á drifbúnaðinn.
Sérhannað bremsukerfi
Hardox 500 TUF
Sveigður framgafl
Vökvavör
LED-ljós
Verkfærakassi
10 gata felgur
Hægt er að setja alsjálfvirkt smurkerfi sem sér öllum smurkoppum fyrir nákvæmu magni af koppafeiti. Einnig bjóðum við upp á að færa smurkoppana, sem erfitt er að komast að, framan á vagninn.
Útvegum einnig sérstakar K80 kúlur og kúlutengi sem koma í veg fyrir að vagninn berji í krókinn.